Ást og friður

Malaga í maí: Útivist, jóga, slökun, heilsa, náttúra og dýralíf

Regular price 60.000 kr
Regular price Sale price 60.000 kr
Tax included. Shipping calculated at checkout.

Mjúkt jóga úti í jógatjaldi, göngur meðfram ánni eða inní korskóginn, hugleiðslur, öndunaræfingar, jóga nidra leidd liggjandi djúpslökun í eftirmiðdaginn, fræðsla um ayurveda lífsvísindin, spjall um meltingu og næringu, krydd og jurtir, heilandi grænmetisfæði (egg og kindaostur líka í boði), nudd, slakandi og hreinsandi leirbað, söguspjall um arabana og berbana sem ríktu um aldir á Spáni, gaman saman út að borða í Gaucín, heimsókn á geitabúgarð, magnað tónbað með spænskum snillingum, og ekki má gleyma sólbaðinu! Eftir vikuna uppi í fjöllunum er hægt að njóta borgarinnar, fara á ströndina, láta líða úr sér í arabísku böðunum, fara á flamenco rölt eða heimsækja Picasso safnið svo eitthvað sé nefnt. Flug er ekki innifalið. Hver og einn kemur sér sjálfur til Malagaborgar þar sem hópurinn hittist 21. maí.

Ekki þarf að hafa reynslu af jóga til að taka þátt. 

  • Verð í tveggja manna herbergi:  265. 000 kr.
    • Tvö tveggja manna herbergi eru þannig útbúin að þrír geta gist. þá er verðið 245.000 kr
  • Verð í fjögurra manna herbergi: 235.000 kr

Staðfestingargjaldið er 60.000 kr. 

Greiða þarf staðfestingargjald að upphæð 60.000 kr. við skráningu. 

Staðfestingargjaldið er ekki endurgreitt nema ferð falli niður. 

21-28. maí 2024

Komdu með í heilsueflandi ferð til Andalúsíuhéraðs á Spáni. Farið verður í göngur um fjöllin og korkskóginn, mjúkt jóga á morgnana í jógatjaldinu, yoga nidra leidd liggjandi djúpslökun á kvöldin, nudd og leirbað fyrir þá sem vilja.

Við höfum fræðsluspjall einn daginn um áhrif næringar á andlega og líkamlega heilsu út frá hinum fornu indversku lífsvísindum ayurveda og hver og einn fær aðstoð til að finna út sína meðfæddu líkamsgerð skv ayurveda fræðunum.

Ferðin hefst með stuttum göngutúr um miðbæ Malaga þaðan sem rúta er tekin upp í fjöllin og fyrstu nóttina er dvalið í hinu heillandi fjallaþorpi Gaucín sem er nærri El Colmenar þar sem fallegi heilsubúgarðurinn Casa Rural Ahora er staðsettur. 

Í Gaucín notum við tækifærið og höfum söguspjall um márana á Spáni sem settu ærlegt mark sitt á landið með nær átta alda valdatíma sem einkenndist af blómstrandi menningu, framþróun í vísindum og efnahagslífi. Í Gaucín gefst tími til að skoða kastalann sem á rætur að rekja til tíma Rómverja en var mikilvægt virki á tíma máranna. Í Gaucín verður farið út að borða á veitingastað þar sem stórkostlegt útsýni gefur matnum aukið gildi, en hægt er að sjá ljósin í Afríku, hinum megin Gíbraltarsundsins í kvöldrökkrinu.

Næsta dag gerum við léttar æfingar fyrir morgunverð áður en lagt er af stað í langa göngu til þorpsins El Colmenar þar sem heilsubúgarðurinn Casa Rural Ahora er staðsettur. Þar verður síðan dvalið næstu sex nætur.

Við lítum á þessa viku í fjöllunum sem næringu fyrir líkama og sál, og máltíðirnar eru því heilsubætandi grænmetisréttir sem bæði eru afar ljúffengir og heilandi fyrir meltingarveginn og hreinsandi te í anda ayurveda er á boðstólnum eftir máltíðir

Hver og einn kemur sér sjálfur til Malaga. Þess má geta að flugfélagið Play er með beint flug til Malaga 20. maí. Icelandair flýgur líka tvisvar í viku til Malaga og hægt er að fljúga til Madrid og taka hraðlestina þaðan til Malaga. Hraðlestin (El Ave) er mjög þægilegur ferðamáti. 

Á staðnum eru jógamottur en gott er að koma með eitt teppi og púða með sér fyrir jóga nidra djúpslökunina á kvöldin. Ef pláss er í töskunni er líka sniðugt að stinga einum eða tveimur jógakubbum niður.

Skipt er um handklæði einu sinni eða tvisvar í viku á herbergjunum. WC pappír og náttúruleg sápa er á baðherbergjunum. það má nefna að sápan er framleidd á staðnum og algerlega laus við aukaefni. Þar sem þetta er svokölluð "sveita ferðamennska" eða turismo rural, er ekki sami lúxusinn eins og á hótelherbergjum í borgum. Það er því ekki þrifið daglega og enginn ísskápur eða kaffi/te græjur inn á herbergjum og ekki loftkæling heldur viftur í hverju herbergi. Þetta er búgarður í miðri náttúrunni, við endimörk þorpsins El Colmenar sem er í Malaga héraði. Áin Guadiaro rennur fram hjá búgarðinum og í garði nágrannans eru oft kindur á beit rétt við jógatjaldið. Ávaxtatré þar sem vaxa sítrónur, appelsínur, nisperos og fleiri ávextir eru ræktuð á Casa Rural Ahora og er jógatjaldið í miðri þessari náttúrudýrð.

 

Slakandi og hreinsandi leirbað. Rauður leir ásamt magnesíum og ilkmkjarnaolíum. Legið er í 40 mín. 

 

Dagskrá:

20. maí: Allir hittast í miðbæ Malaga að morgni.  Töskurnar er best að geyma á hótelinu þar sem gist var nóttina áður. Við göngum lítinn hring um miðbæinn og í labbinu verður sýnt hvar rútan nær í okkur síðar um daginn. 

21. maí: Rúta sækir okkur um hádegisbil og lagt er í hann til fjallaþorpsins el Gaucín sem er 1,5 klst akstur. 

Í Gaucín verður gengið um bæinn og kíkt á Arnarkastala (Castillo del Agila), sem er kastali frá tíma Rómverja sem er í útjaðri bæjarins. Aðeins um 20 mín ganga að honum. Farið út að borða saman um kvöldið á stað með stórkostlegu útsýni yfir til Marokkó í Afríku. Gist í Gaucín.

22. maí: Morgunæfingar. Morgunverður og síðan gengið frá Gaucín til Casa Rural. Þetta er um 4 klst ganga og að mestu niður á við en stundum eru brekkur. Lagt af stað um kl. 10:00 - 10:00. Bíll kemur að sækja farangur og ferjar hann niður til Casa Rural Ahora.

22-28 maí: Námskeið í Casa Rural Ahora. Jóga, hugleiðsla, öndunaræfingar, djúpslökun, nudd, leirbað, mega tónbað með tveimur spænskum snillingum sem koma með nokkur gong, tónskálar og fleira frá Malaga, göngur og fræðsluerindi. 

Á leiðinni til baka niður til Malagaborgar, heimsækjum við geitabúgarðinn Crestellina og fáum stutta fræðslu um þessar einstöku fjallageitur sem eru í útrýmingarhættu. Við fræðumst um geitaostagerð og fáum að smakka osta og vín úr héraði. Þarna er líka ostabúð sem sérhæfir sig í geitaosti og selur ýmislegt annað úr héraðinu eins og vandaðar ólífuolíur, pylsur, kombucha og hunang.







Dagskráin í Casa Rural Ahora heilsubúgarðinum hefst í jógatjaldinu 22. maí kl. 17:00 með kynningarhring. Kvöldmatur kl. 20:00.

**********************

  • Hver dagur hefst á annaðhvort jóga og stuttri slökun í jógatjaldinu eða léttri göngu frá 8:00 - 9:15
  • Morgunverður kl. 9:15 - 10:00
  • Hádegisverður kl. 14:30-15:30 (aðal máltíð dagsins)
  • Kvöldverður kl. 20:00 - 21:00 (létt máltíð s.s. súpa og/eða eldað grænmeti og salat)
  • Alla daga er farið í göngur.
  • Alla daga er frjáls tími til að fara í nudd eða leirbað. 
  • Eftir hádegisverð er frjáls tími fram að kvöldverði. Nudd eða leirbað hjá þeim sem það eiga bókað. Hægt að ganga niður að á, upp í þorp, synda og sóla sig.
  • Einn daginn verður fræðsla og heilsuspjall eftir morgunverð: Áhrif næringar og lífsstíls á andlega og líkamlega heilsu og kosti þess að styðja við hreinsun líkamans.  Aðferð Ayurveda við hreinsun líkamans er útskýrð og rætt um mismunandi líkamsgerðir og hvernig ákveðið fæði og lífsstíll hentar fólki misvel. Dæmi tekið af ketó, köldum böðum, hot yoga og föstum og fleiru sem er misgott fyrir fólk.
  • Alla dagana verður hreinsandi og meltingaraukandi kryddte í boði í anda ayurveda.
  • Jóga Nidra leidd liggjandi djúpslökun og spilað á tónskálar dagega.  
  • Reykingar eru ekki leyfðar innan búgarðsins.
  • Kaffi verður ekki í boði í Casa Rural Ahora þar sem það vinnur gegn heilsubótarmarkmiðum ferðarinnar. En fyrir þá sem vilja fá sér sopann sinn eru nokkur kaffihús í þorpinu. Aðeins 3-4 mínútur að ganga frá búgarðinum.

Ekki þarf að hafa reynslu af jóga til að taka þátt.

Fararstjóri er Heiða Björk Sturludóttir, leiðsögumaður, kennari, jógakennari, ayurveda sérfræðingur og næringarþerapisti. Henni til aðstoðar er Þröstur Sverrisson, umhverfissagnfræðingur og gönguleiðsögumaður.

INNIFALIÐ: 

  • Gisting og morgunverður í fjallaþorpinu Gaucín
  • Gisting og fullt fæði í Casa Rural Ahora heilsubúgarðinum
  • Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður á meðan á dvöl stendur  (Grænmetisfæði en þó stundum boðið upp á eggjaköku og kindaost)
  • Efnaskiptate í anda ayurveda í boði alla dagana í Casa Rural Ahora
  • Filterað vatn til drykkjar
  • Morgunjóga (mjúkt jóga og yin yoga, öndunaræfingar, möntrur og hugleiðsla)
  • Jóga nidra leidd liggjandi djúpslökun daglega. Spilað á söngskálar í lokin.
  • 1,5 klst Tónbað með þeim Raúl og Fran sem eru miklir snillingar með gongin sín, skálarnar og öll hin hljóðfærin. 
  • Jógamottur
  • Næringar- og heilsufræðsla í anda ayurveda lífsvísindanna indversku með stöku fræðslupunktum úr vestrænni næringarþerapíu.
  • Sögufræðsla um veldistíma máranna á Spáni (Heiða kenndi sögu máranna í 15 ár í framhaldsskóla og er höfundur kennsluefnisins)
  • Gisting í tveggja- og þriggja manna herbergjum með baði. Eitt fjögurra manna herbergi í boði líka þar sem hvert rúm er með sitt náttborð. Ekki kojur.
  • Handklæði, sápa og sængurfatnaður. (skipt um einu sinni á meðan á dvöl stendur eða oftar ef þörf krefur)
  • Heimsókn og fræðsla á geitabúgarðinum La Crestellina. Allir fá að útbúa sinn eigin geitaost til að taka með heim. 
  • Sex göngur með leiðsögn:
    • Gengið frá Gaucín til Casa Rural Ahora ( um 4 klst) Nokkuð erfið ganga en þó ekki mikil hækkun. 
    • Í Casa Rural Ahora: Þrjár léttar göngur (um 1 klst). Tvær lengri göngur; önnur um 3 klst og talsverð hækkun og síðasta gangan er rúmar 3 klst með stoppum, að hinu dásamlega fallega Hrægammagljúfri. Þangað göngum við síðasta daginn með nesti og böðum okkur í tærri ánni.
  • Rúta upp í fjöllin 21. maí og aftur til baka 28. maí.
  • Flutningur á farangri frá Gaucín á meðan hópurinn gengur niður til Casa Rural Ahora.
  • Leiðsögn þeirra Heiðu Bjarkar og Þrastar

EKKI INNIFALIÐ:

  • Flug til Malaga
  • Gisting og bröns þann 21. maí í Malagaborg
  • Nudd og leirbað í Casa Rural Ahora (nuddið kostar 40 evrur og leir/magnesiumbaðið 30 evrur)
  • Hádegis- og kvöldverður í Gaucín og nesti til að taka með í gönguna niður til Casa Rural Ahora daginn eftir (22. maí)

Hitastig í El Colmenar þorpinu seinni part maí, er vanalega um 24-27 gráður yfir daginn.
Þeir sem vilja framlengja dvölina í Malaga eftir að námskeiðinu í fjöllunum er lokið verður bent á margvíslega spennandi möguleika.

UMSAGNIR

,,Dásamleg ferð í alla staði góð blanda af fræðslu, iðkun, dekri og slökun. Heiða og Þröstur halda vel utan um hópinn og umhverfið í fjöllunum æðislegt. Við hjónin komum endurnærð og sultuslök úr þessari yndisferð." Þóra Þórðardóttir

,,Ég Fór með Heiðu og Þresti til Malaga vorið 2022. Stunda ekki yoga en hafði upplifað mikla streitu í töluverðan tíma og langaði að prófa eitthvað nýtt. Ferðin var dásamleg, Casa Rural er yndislegur og friðsæll staður og maturinn dásamlegur. Ég borða kjöt en ég saknaði einskis á þessu bragðgóða og flotta grænmetis fæði. Náði mikilli ró og slökun og naut yoga tímanna hjá Heiðu kvölds og morgna. Takk fyrir mig." Fríða Björk 

,,Við hjónin höfum verið með í þessum ferðum frá upphafi. Það er sjaldan sem ferðir bjóða upp á góðan og hollan mat, gönguferðir í friðlandi í regnskógarbelti Andalúsíu, heilun og jóga með frábærum kennara sem Heiða er, sögufyrirlestrum um svæðið frá sagnfræðingum, fræðsla um Ayurveda o.fl og o.fl. Hópurinn hristist fljótt saman og úr verður notaleg samverustund milli leirbaða, jóga og nudds. Undanfarin ár hafa Heiða og Þröstur verið að þróa þessa ferð og hún verður sífellt betri t.d. með heimsókn í fjallaþorp og nýjum göngum. Við mælum heilshugar með þessum ferðum þar sem fólk fær tækifæri til að hlaða batteríin og vera með í að mynda góðan félagsskap." Gulli og Malla

,,Ég hef í tvígang tekið þátt í heilsu- og jóga námsskeiði í Andalúsíu á Spáni á sem að þau Heiða Björk og Þröstur hafa séð um. Dvölin á heilsubúgarðinum “Casa Ahora” í þorpinu El Colminar er sannkölluð dásemd þar sem jóga iðkun kvölds og morgna, heilnæmt og hreint mataræði, ásamt valdeflandi göngum og fræðslu í fagurri náttúru Andalúsíu hefur verið mér mikil heilsubót. Það er líka mikill félagsauður fólginn í því að kynnast hópi fólks, þar sem allir eru að vinna að betri heilsu með jákvætt hugarfar að leiðarljósi." Auður Leifsdóttir.

,,Ekki missa af þessari dýrð,einfalt og gott bæði matur hreyfing og dekur💖 Gunnhildur Emilsdóttir.

****************
Nánari upplýsingar og skráning  í síma 8650154 og í tölvupósti til:  astogfridur@astogfridur.is 

 


Heiða Björk og Þröstur leiðangursstjórar.

Notið náttúrunnar í nestisferð í Hrægammagljúfur

Dásemdarsund í Hrægammagljúfri 

Fjögurra manna herbergi. Veggur með hurðaropi og hengi fyrir aðskilur tvö rúm frá tveimur öðrum. Eitt salerni fyrir rúmin fjögur. 

2-3 manna herbergi. Hjónarúmið er 135 cm á breitt og uppi á lofti er álíka breið dýna

 

Baðherbergin eru skemmtiega hönnuð -spænskur sveitastíll og hvert herbergi er með sinn stíl. 

Casa Rural Ahora búgarðurinn. 

 

Heiða leiðir morgunjógastund í jógatjaldinu

 

Áin Guadiaro rennur fyrir neðan búgarðinn þar sem gott er að kæla sig í sumarhitunum.  

 

Mikið dýralíf og náttúra einkenna ferðina. Hundurinn Dao, læður tvær yndisfagrar, kindin Paco búa öll á búgarðinum og í nágrenninu eru villikettir sem við hugum stundum að. Asni og kindur nágrannans bjóða stundum upp á slakandi söng í keppni við fuglana. 

 

 

 

Stundum er brugðið á leik í jógatjaldinu

 

 

Þeir Raúl og Fran koma einn daginn með öll hljóðfærin sín og bjóða okkur upp á magnað tónbað. 

 

Shipping & Returns

Hægt er að sækja vörur í Björkina í Grímsnesinu skv. samkomulagi. (Nærri Borg í Grímsnesi)

Fyrir nánari upplýsingar:
astogfridur@astogfridur.is - s. 8650154

Við sendum vörur um land allt. Pantanir eru afgreiddar á þriðjudögum í hverri viku nema á frídögum.