Hausthreinsun í anda ayurveda - Október

Einstök einstaklingsmiðuð 14 daga Ayurveda HAUSThreinsun með Heiðu Björk. Ein sú mikilvægasta á árinu. Jurtir sniðnar að hverjum og einum innifaldar.

Kennari: Heiða Björk Sturludóttir ayurvedasérfræðingur.

HVENÆR: Laugardaga 5. og 12. október og þriðjudaginn 15. október.
(Hægt að hlusta á í gegnum zoom fyrir þau sem búa úti á landi).

HVAR: Systrasamlagið . TÍMI: LAUGARDAGUR 5. október frá 11:00-14:00 og ÞRIÐJUDAGUR 15. október frá 17:30 til 20:00.

ZOOM 12. október, LAUGARDAGUR; klukkustundarspjall frá 10:00 til 11:00.

Verð: 35.000 kr

Námskeið er með Heiðu Björk Sturludóttur næringarþerapista sem er útskrifuð úr grunn- og framhaldsnámi sem Ayurveda Practioner frá Kerala Ayurveda Academy og systrunum í Systrasamlaginu.

 

Námskeið og hreinsunin í Systrasamlaginu 2024 verður einstaklega áhugaverð í október enda farið dýpra í Ayurvedafræðin en nokkru sinni og hreinsunin aðlöguð að þörfum hvers og eins. Fylgt er mjög skýru, aðgengilegu, notalegu og persónulegu plani frá degi til dags. En áður en lagt er af stað mun Heiða  Björk vera í sambandi við hvern þátttakanda, því mismunandi ástand líkama og hugar hjá hverjum og einum krefst mismundi jurta sem notaðar eru við hreinsunina.

Ayurveda hausthreinsunin er hressandi leið til að hefja alveg nýtt og orkuríkt tímabil enda má segja að þessi fornu fræði búi yfir dýpstu og bestu hreinsunarþekkingu sem völ er á. Hreinsun meltingarkerfisins hefur reynst mörgum vel til að vinna á liðverkjum, höfuðverk, svefnvandamálum, húðvandamálum, að sjálfsögðu líka meltingarvandamálum og til að stilla af blóðsykurinn.

Meltingarfærum er gefinn friður til að endurnýja og hreinsa og nokkurnveginn núllstilla kerfið til að það fari að vinna rétt. Hér er um að ræða dýpri hreinsun en gengur og gerist. Með því kemur jafnan mikil og góð orka. Þessu er kannski hægt að líkja við það þegar tölvan er farin að hægja á sér og frjósa. Þá lokum við öllum gluggum og endurræsum.

Námskeiðið fer semsé fram tvo daga í hinu notalega Systrasamlagi, laugardginn 6. október frá 11:00-14:00 og síðan hittumst við aftur síðdegis þriðjudaginn 15. október frá 17:30 – 20:00. Í millitíðinni verður klukkustundar ZOOM fundur, laugardaginn 12. okt frá 10:00 – 11:00.


Boðið verður upp á málsverð í anda Ayurveda 6. og 12. október.

******************

Í framhaldi af fyrsta fundi höldum við hópinn á facebook á meðan hreinsun stendur. Þar verður bein útsending laugardaginn 12. október til að fara yfir helstu atriði og þátttakendur geta skrifað inn spurningar jafn óðum.

Jafnframt getið þið varpað spurningum á Heiðu Björk í tölvupósti meðan á hreinsun stendur.

Gaman er að segja frá því að á síðasta ári gaf Heiða Björk út hina stórmerku bók Ayurveda listin að halda jafnvægi í óstöðugri veröld. Þá bók verður hægt að kaupa með 20% afslætti í Systrasamlaginu fyrir þáttakendur.

Ps: Til að létta ykkur lífið verður hægt að versla kitshari og súpur ýmist fyrir 3 eða 6 daga í senn á betra verði í Systrasamlaginu í tilefni hreinsunar. Það getur létt mörgum lífið.  Frekari upplýsingar um það verða veittar fyrsta fundi.

Takmörkuð pláss í boði!!

 

Hægt er að tryggja sér sæti í gegnum vef Systrasamlagsins. Smellið á hlekkinn hér fyrir neðan til að kaupa sæti. 

https://systrasamlagid.is/vefverslun/namskeid-vidburdir/mikilvaegasta-hausthreinsun-arsins-einstok-einstaklingsmidud-14-daga-ayurvedahreinsun-med-heidu-bjork-i-oktober/