Ást og friður

🔆 MORGUNANDAKT MEÐ MEIRU! 🔆 10 daga áskorun. Olía og Öndun.

Regular price 9.000 kr
Regular price Sale price 9.000 kr
Tax included. Shipping calculated at checkout.
Low stock (7 items)

Nú gefst þér tækifæri til að taka upp góðar venjur í anda ayurvedafræðanna og gera abhyanga (sjálfsnudd með olíu) og nadi shodhana öndun í morgunsárið. Þetta er framhaldsnámskeið fyrir þau sem voru með í 5 vikna áskoruninni sem hófst í byrjun apríl.  Það er þó lítið mál fyrir nýja að bætast við!  Ég get hitt alla sem vilja stökkva á vagninn og vera með á framhaldsnámskeiðinu í stutta stund á netinu áður en námskeiðið hefst og farið yfir öndunaræfinguna Nadi Shodhana og nokkur önnur atriði sem hin hafa nú þegar náð góðum tökum á. En, þetta er ekki flókið og eftir fyrstu tvo morgnana er þetta komið.  

Fyrra námskeiðið, (sem lýkur 9. maí) gekk svo vel að ég ákvað að hafa framhald. Ég og þátttakendurnir finnum hvað þetta gerir okkur gott. En nú bætum við um betur og berum á okkur olíu (sesamolíu, möndluolíu, kókosolíu eða einhverja aðra góða kaldpressaða olíu) áður en við hittumst á netinu og leyfum henni að sitja á húðinni á meðan við gerum öndunaræfingarnar saman. Þegar allir hafa kvaðst í lok Morgunandaktar er farið í sturtu eða bað og olían þvegin af með heitu vatni. Hún hefur þá haft rúman hálftíma til að ganga inn í húðina og smyrja og næra vefi líkamans. Fátt er betra fyrir taugakerfið og til að vinna gegn öldrun. 

Jákvæðar breytingar sem þátttakendur hafa fundið á fyrra námskeiðinu eru t.d. eftirfarandi: Svefninn batnar, orkan batnar, meiri gleði í hjarta, meiri slaki í taugakerfi, röddin styrkist og lungnarýmdin eykst. 

Rannsóknir hafa sýnt margvíslegan ávinning af því að gera nadi shodhana reglulega eins og HRV eykst (hjartsláttarbreytileiki) sem gerir að verkum að hjartað stenst álag betur, blóðþrýstingur lækkar, einbeiting og minni batnar svo eitthvað sé nefnt. 

Við hittumst á zoom kl. 7:30 í tíu morgna og erum saman í öndun og spjalli í hálftíma. Fyrsti morguninn er 5. júní.  Stundum er samveran ögn lengri til að gefa tíma fyrir spurningar og spjall. 

Vertu með og bættu heilsuna í góðum félagsskap

Shipping & Returns

Hægt er að sækja vörur í Björkina í Grímsnesinu skv. samkomulagi. (Nærri Borg í Grímsnesi)

Fyrir nánari upplýsingar:
astogfridur@astogfridur.is - s. 8650154

Við sendum vörur um land allt. Pantanir eru afgreiddar á þriðjudögum í hverri viku nema á frídögum.