Ást og friður

🌿🌸💦 Ayurveda SVEITA-GUSA OG SLÖKUN fyrir dömur 22. júlí 2026 (Hámark 8) 🩱👙

Regular price 14.000 kr
Regular price Sale price 14.000 kr
Tax included. Shipping calculated at checkout.
Low stock (2 items)


🌿🌸💦 Dömu-Dekurgusa í sveitinni með ayurveda áherslum 🌿🌸💦

- olía - fræðsla - jóga nidra og tónheilun í jógatjaldi - möntrur og öndun - nasl og drykkir í anda ayurveda. 

Hvar? Ayurveda Sveitagusan verður í Björkinni jógahofi í Grímsnesi.

Hvenær? 13-17:30, miðvikudaginn 22. júlí

Heiða Björk ayurveda sérfræðingur (Ayurveda Practitioner og jógakennari) mun leiða þennan ayurveda dekurdag og aðlaga gusuna að vísindum ayurveda. Fræðsla um hvernig er hægt að nýta þekkingu ayurveda lífsvísindanna í daglegu lífi verður gefin í spjalli á milli atriða. Umræðan mun fara þangað sem gusu-andinn blæs okkur í brjóst sem er alltaf skemmtilegast 🧚 Ýmislegt sem tengist ayurveda verður til sölu á afslætti fyrir dömurnar 🧚

Dásamlegur slaki myndast í taugakerfinu eftir góða gusu og ekkert sem toppar það að leggjast þá niður í djúpslökun og tónbað eftir svolítið hollustunasl. 

ATH. Ef einhverja langar til að koma eingöngu í Yoga Nidra og tónheilun, þá er mögulegt að bæta tveimur dömum við sem eingöngu kæmu í það. Þá yrði mæting kl 16:15 í stað kl. 13:00. Verð fyrir eingöngu Yoga Nidra + tónheilun + heimalagað te er 5000 kr. Hafa samband við Heiðu Björk til að skoða þennan möguleika. 

Taka með sér fyrir gusuna 🩱👙:

  • Tvö handklæði - þvottapoka eða þvottastykki
  • Baðföt eins og bikiní eða sundbolur. Bikiní er betra 
  • Inniskó
  • Olía til að bera á líkamann. Nánari upplýsingar hjá Heiðu Björk í astogfridur@astogfridur.is

Taka með sér fyrir Yoga Nidra og tónheilunina (Gong og skálar) (Á staðnum eru jógadýnur, teppi, púðar og augnhvílur):

  • Mjúk og teygjanleg föt. Ef dagurinn er svalur er gott að taka með sér ullarnærföt (síðar ermar og skálmar), létta húfu/mjúka lambhúshettu og hlýja sokka, flíspeysu og kannski aukateppi). Ef góðviðrisdagur vilja einhverjar kannski liggja léttklæddar í grasinu.
  • Ef þú ert með viðkvæmt bak og þarft extra mjúka dýnu til að liggja á getur þú tekið svoleiðis með þér. Á staðnum eru tvær 10 cm svampdýnur sem eru í boði fyrir bakveika)
  • Tekrús/Ferðabolla fyrir heimalagað meltingar- og efnaskiptate sem boðið verður uppá. Tilvalið að sötra það í bílnum á leiðinni heim. 

Annað:

🐈  Á svæðinu eru tveir spakir kettir sem geta verið röltandi um úti eða sofandi í stól. Þeir sem eru með slæmt kattarofnæmi þurfa því að taka ofnæmistöfluna sína. 

🧐 Fyrir þær sem vilja punkta hjá sér upplýsingar úr fræðsluspjallinu gæti verið sniðugt að taka með sér penna og glósubók.

🧘 Björkin - jógahof er í Grímsnesi í klukkustundarfjarlægð frá Reykjavík. Rétt hjá þorpinu Borg í Grímsnesi. Nákvæmar upplýsingar um staðsetningu verða gefnar eftir skráningu. 

Nánari upplýsingar gefur Heiða Björk - Sími 8650154 eða astogfridur@astogfridur.is

www.astogfridur.is

 

Shipping & Returns

Hægt er að sækja vörur í Björkina í Grímsnesinu skv. samkomulagi. (Nærri Borg í Grímsnesi)

Fyrir nánari upplýsingar:
astogfridur@astogfridur.is - s. 8650154

Við sendum vörur um land allt. Pantanir eru afgreiddar á þriðjudögum í hverri viku nema á frídögum.