Skilmálar
Ást og friður ehf. afgreiðir pöntun þegar greiðsla hefur borist fyrir þær vörur sem pantaðar eru. Strax og greiðsla berst sendum við þér staðfestingu með tölvupósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og Ást og friður ehf.
Afhending og sendingakostnaður
Hægt er að sækja vörur í Grímsnesið skv. samkomulagi.
Fyrir nánari upplýsingar og/eða samkomulag vegna afhendingar:
astogfridur@astogfridur.is - sími 8650154
Við sendum vörur um land allt.
Greiðslur og öryggi við pantanir
Hægt er að greiða pantanir með greiðslukorti.
astogfridur.is þarf hvorki að taka við né geyma kortanúmer viðskiptavina sinna. Viðskiptavinur velur vöru á vefsíðunni astogfridur.is og þegar kemur að greiðslu er hann fluttur yfir á Greiðslusíðu Verifone þar sem kortaupplýsingar eru skráðar og greiðsla fer fram.
Greiðslusíða Verifone tryggir að kortaupplýsingar viðskiptavina eru meðhöndlaðar í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi og aldrei aðgengilegar þriðja aðila.
Netverð
Öll íslensk verð á astogfridur.is eru með virðisaukaskatti. Vinsamlegast athugaðu að vöruverð á astogfridur.is getur breyst án fyrirvara og að öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl eða prentvillur.
Skilaréttur
Vísað er til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Viðskiptavinur hefur 14.daga skilarétt og fulla endurgreiðslu á öllum vörum frá astogfridur.is
Ábyrgðarskilmálar
Ef vara frá astogfridur.is reynist gölluð á viðskiptavinur rétt á fullri endurgreiðslu eða fá nýja vöru senda sér að kostnaðarlausu.
Trúnaður og persónuupplýsingar
Fullum trúnaði er heitið vegna persónuupplýsinga. Við leggjum áherslu á að varðveita upplýsingar þínar á öruggan hátt og áframsendum ekki netföng né annað sem tengist viðskiptavinum.
Lög og varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur netverslun astogfridur.is á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.