Ást og friður

Ayurveda - Spjall og dekur - 14. júní kl. 13-16:30

Regular price 14.000 kr
Regular price Sale price 14.000 kr
Tax included. Shipping calculated at checkout.
Low stock (6 items)

Á þessu námskeiði verður frjálslegt snið. Við spjöllum um líkamsgerðirnar meðfæddu og hvernig dósjurnar þrjár birtast í lífinu, hvort sem er í líkama okkar og huga eða í hlutum, dýrum, kryddum, jurtum, fæðu, árstíðum, tímum sólarhringsins og æviskeiðum.  Við förum þangað sem umræðan leiðir okkur og allar spurningar því velkomnar. Við ræðum um praktísk atriði eins og það hvernig hægt er að nýta jurtir og krydd til að vinna með heilsuna og ýmis praktísk atriði verða kynnt úr fórum ayurveda sem gott er að þekkja til að viðhalda góðri heilsu og orku. 

Gullmjólk með smá dassi af hreinu cacao verður í boði og heitt CCF te sem er meltingar- og efnaskiptate sem er mjög hreinsandi og gott fyrir meltinguna.  Ljúft ayurveda nasl verður líka í boði. 

Í lok námskeiðsins leggast allir útaf á jógadýnu og slaka með aðstoð yoga nidra og gong. 

Gott er að mæta í mjúkum og teygjanlegum fötum með glósubók og penna meðferðis. 

Nánari upplýsingar veitir Heiða Björk ayurvedasérfræðingur í netfanginu astogfridur@astogfridur.is eða í síma 8650154. 

Aðeins er pláss fyrir 6 þátttakendur. 

Í boði verður að kaupa ayurveda te, amalaki ofurfæðuna og fleira á 10% afslætti. Bókin um ayurveda verður á tilboðsverði fyrir þátttakendur. 

Shipping & Returns

Hægt er að sækja vörur í Björkina í Grímsnesinu skv. samkomulagi. (Nærri Borg í Grímsnesi)

Fyrir nánari upplýsingar:
astogfridur@astogfridur.is - s. 8650154

Við sendum vörur um land allt. Pantanir eru afgreiddar á þriðjudögum í hverri viku nema á frídögum.