




Ást og friður
Couldn't load pickup availability
Við hittumst alla morgna nema sunnudagsmorgna, kl 7:10 og gerum öndunaræfingu saman og ræðum aðeins um heilsubætandi atriði úr verkfærakistu ayurvedafræðanna. Hver hittingur er 30 mín langur og hefst alltaf á víxlöndun sem kallast Nadi Shodana. Þetta er stórkostlega áhrifarík öndun sem eykur lífskraftinn og fínpússar orkuflæðið eftir orkubrautum líkamans.
Fjöldinn allur af rannsóknum hefur sýnt fram á jákvæð áhrif eins og t.d.:
Hér eru tenglar í nokkrar rannsóknir á virkni nadi shodana.
https://pmc.ncbi.nlm.nih.gov/articles/PMC11996816/
https://pmc.ncbi.nlm.nih.gov/articles/PMC10388195/
Á fimm vikum muntu finna mikinn mun á orku og andlegri líðan. Heilunarmáttur líkamans er virkjaður með þessari öndunartækni. Stundum munum við bæta stuttri annarskonar öndunaræfingu aftan við eða stuttri leiddri hugleiðslu en alltaf verður stutt ayurvedaspjall í lokin.
Fyrir hittinginn verður þú búinn að fara í sturtu og vekja líkamann aðeins með teygjum og eftir hittinginn er tilvalið að borða léttan morgunverð og halda svo af stað út í daginn. Við ræðum um heppilega morgunrútínu í fræðslunni fyrstu dagana.
Námskeiðið hefst 6 apríl kl 7:10 og lýkur 9. maí þegar við gerum síðustu öndunaræfinguna en þá verðum við komin í 25 mín ástundun. Við hefjum þó leika á 5 mín öndun og megnið af tímanum verður fræðsla og spjall. Smá hugleiðsla í bland við fræðslu. En smám saman lengist öndunaræfingin þar til við verðum komin í 25 mín af víxlöndun. Það þarf að anda víxlöndunina í a.m.k. 20 mín til að virkilega verða var við breytingar á líkama og huga. Við vinnum okkur upp í það smá saman. Þegar námskeiðinu lýkur getur þú haldið áfram á eigin spítur þessari heilsubætandi iðju.
Þetta er stórkostlega öflug leið til að byrja daginn. Þú ferð með gleði í hjarta og kyrrð í taugakerfinu inn í daginn. Góð morgunrútína er kölluð DINACHARYA í ayurveda lífsvísindunum og er lögð mikil áhersla á að hver og einn komi sér upp góðri dinacharya til að viðhalda góðri heilsu eða bæta heilsu ef hún er ekki nógu góð.
Það hefst annað námskeið í byrjun júní ef þú vilt áframhaldandi aðhald við ástundunina.
Hægt er að sækja vörur í Björkina í Grímsnesinu skv. samkomulagi. (Nærri Borg í Grímsnesi)
Fyrir nánari upplýsingar:
astogfridur@astogfridur.is - s. 8650154
Við sendum vörur um land allt. Pantanir eru afgreiddar á þriðjudögum í hverri viku nema á frídögum.