Við byrjum dagana með morgunjóga úti í guðsgrænni náttúrunni og morgunsól. Æfingarnar eru léttar yin jóga æfingar í bland við mildar hatha jóga æfingar. Síðar um daginn verður slakað á með leiddri liggjandi djúpslökun í anda jóga nidra og endað með tónheilun þar sem spilað verður á Gong og tónskálar. Maturinn verður í anda ayurveda lífsvísindanna. Heilsusamlegt grænmetisfæði þar sem krydd eru notuð markvisst til að ná betri meltingu og efnaskiptum. Matreiðsla á nokkrum þekktum ayurvedískum réttum verður kennd s.s að útbúa kitchari, takra jógúrtdrykkinn, túrmerik latte og ghee
Daglega verður boðið upp á fræðslu um ayurveda lífsvísindin og hvernig hægt er að halda lífskröftunum innra með okkur í jafnvægi. Einnig verður morgunrútína og kvöldrútína kennd en í ayurveda er lögð áhersla á að koma sér upp góðri rútínu til að vinna að og viðhalda góðri heilsu. Rætt verður um notkun krydda og jurta og athyglinni beint að nokkrum marma-punktum sem hægt er að vinna með til að efla orkuflæði í huga og líkama.
Fjallað verður um grunn-líkamsgerðirnar í ayurveda og þátttakendum hjálpað til að ákvarða sína meðfæddu líkamsgerð sem á vestrænu tungumáli er kallað erfðamengi.
Daglega verður farið í Skógarbað til að hlaða batteríin og tengjast náttúrunni. Jurtir verða tíndar og vinnsla þeirra kennd og te hitað í skógarrjóðri.
Skráning og nánari upplýsingar má sjá á ÞESSARI VEFSÍÐU
Hægt er að sækja vörur í Björkina í Grímsnesinu skv. samkomulagi. (Nærri Borg í Grímsnesi)
Fyrir nánari upplýsingar:
astogfridur@astogfridur.is - s. 8650154
Við sendum vörur um land allt. Pantanir eru afgreiddar á þriðjudögum í hverri viku nema á frídögum.