Ást og friður

🧞‍♂️ Heilsu-, fræðslu- og ævintýraferð til Indlands í febrúar/mars 2027 🧞‍♂️

Regular price 0 kr
Regular price Sale price 0 kr
Tax included. Shipping calculated at checkout.

Heiða Björk býður til til heilsuveislu og upplifun á Indlandi í samstarfi við Mundo, þar sem áherslan er lögð á panchakarma heilsumeðferðina sem stunduð er í ayurveda lífsvísindunum. Athugið 40.000 kr snemmskráningarafslátt ef bókað er fyrir 15. september. Skráning fer fram á vef Mundo. https://mundo.is/ferd/indland-heilsu-og-aevintyraferd-februar-mars-2027/

Flogið verður út u.þ.b. 25. febrúar og komið heim u.þ.b. 28. mars. Dvalið verður í 24 daga (frá 1-24 mars) á hinu margverðlaunaða ayurveda heilsusetri AYURVEDAGRAM sem er í Karnataka héraði á Suður-Indlandi. 

Í þessari ferð gefst tækifæri til að sameina áhrifaríka heilsumeðferð í anda ayurveda og ævintýraferð til Indlands um leið og fræðst er um hina áhrifaríku lækningameðferð PANCHAKARMA.  Námskeiðið og ferðina leiðir Heiða Björk næringarþerapisti, ayurvedasérfræðingur, kennari og leiðsögukona. 

Panchakarma er einstaklingsmiðuð heilsumeðferð ayurveda lífsvísindanna. Ayurveda læknir fer yfir heilsufar og væntingar og lagar meðferðina að því. Ekki er nauðsynlegt að þekkja ayurvedafræðin eða jógafræðin til að njóta panchakarma meðferðar. 

Með aðferð panchakarma er hægt að koma jafnvægi á lífskraftana þrjá (dósjurnar þrjár): vata, pitta og kapha – sem stýra virkni líkama okkar. Þegar þær eru komnar úr jafnvægi byrja veikindi að láta á sér kræla. Meðferðin er því gagnleg fyrir þá sem glíma við heilsufarsvanda, jafnt líkamlegan sem andlegan en ekki síður fyrir þá sem vilja styrkja líkamann og hægja á öldrun. Húðin ljómar og líkaminn er allur slakur og fínn eftir panchakarma meðferð þar sem dekrað er við hvern og einn með hollu og góðu fæði, jurtastyrktum olíum, olíunuddi eða þurrnuddi með jurtum, jóga, hugleiðslu, öndunaræfingum og einfaldlega með því að slaka á í fallegu umhverfi og koma reglu á lífsklukkuna.

Heiða Björk slakar á í einu af fjölmörgum hengirúmum á milli meðferða og viðburða

Sumir fara reglulega í panchakarma til að stilla dósjurnar af og leggja inn í heilsubankann en aðrir fara sjaldnar og eingöngu til að vinna með ákveðna sjúkdóma eða kvilla. Því lengur sem dvalið er, því meiri árangur næst.

Í upphafi fyllir fólk út spurningalista varðandi heilsufar sitt og sendir til Ayurvedagram setursins. Þegar út er komið tekur við viðtal og skoðun hjá ayurveda lækni sem útbýr prógram í samræmi við svörin í spurningalistanum og skoðunina á staðnum.  Ayurveda læknir athugar daglega stöðuna hjá hverjum og einum og gerir breytingar í samræmi við þá framvindu sem á sér stað í meðferðinni. Dagarnir líða síðan við jógaiðkun, slökun í hengirúmi, bókalestur, spjall við aðra gesti, meðferðir, matmálstíma, tetíma (high tea kl 16) og margvíslega viðburði kl 18.  Margir taka leigubíl inn til Bangalore einu sinni eða tvisvar yfir dvölina til að kíkja í verslanir. Það er þó ekki æskilegt að vera mikið á flandri þegar dvalið er á panchakarma setri. 

25 eða 26. febrúar 2027:

Haldið á vit ævintýranna

Flogið frá Íslandi til Bangalore á Indlandi með millilendingu í London, Frankfurt, Amsterdam eða annarri evrópskri borg. Þaðan er síðan beint flug til Bangalore. 

27. febrúar :

Við erum komin til Indlands!

Eftir lendingu í Bangalore höldum við á huggulegt hótel í miðbænum, tékkum okkur inn og slökum á eftir langt ferðalag. Það er gott að vera búin að jafna sig á flugþreytu þegar meðferð hefst á Ayurvedagram.

28. febrúar :


Dagsferð um Bangalore og nágrenni til að njóta menningarinnar og matarins sem Karnataka hérað býður upp á. Máltíð á Bananablaði er vinsæl og ljúffeng. 




1. mars - 24. mars :

Dvöl á Ayurvedagram sem hlaut nýverið verðlaun og viðurkenningu sem besta ayurveda heilsusetur Suður-Indlands árið 2025.
 

24 daga áhrifarík heilsumeðferð - Panchakarma - sem notuð hefur verið í árþúsundir til að koma jafnvægi á lífskrafta (dósjur) líkamans til að bæta heilsu eða lengja og bæta lífslíkur. Meðferðin er áhrifarík fyrir bæði andlega og líkamlega kvilla en ekki þarf að þjást af sjúkdómum til að gera panchakarma, heldur er mælt með reglubundinni iðkun til að viðhalda góðri heilsu og halda aftur af hrörnun líkamans. Stórkostlegir hlutir geta gerst þegar líkaminn fær næði til að heila sig og endurnýja orkuna. 


 

24.-27. febrúar :

Eftir meðferðirnar í Ayurvedagram verður farið í rútu til borgarinnar Mysore sem áður fyrr var höfuðborg konungsríkisins Mysore í suðvestur Karnataka héraði. Borgin er mikil yoga borg og með marga fallega almenningsgarða. Hún er þekkt fyrir menningararf og hallir og sú frægasta er Mysore höllin þar sem blandast saman byggingarlist hindúa, islam, gotnesks og rajput. Í Mysore er líka hinn margra alda gamli Devaraja markaður sem er fullur af silki, kryddum, ilmolíum og sandalvið. Gist verður á vönduðu hóteli í miðbæ Mysuru í göngufæri við Devaraja markaðinn og Kukkarahalli vatnið. Railway museum og fleira áhugavert en í göngufjarlægð.

Í Mysore verður farið í eina dagsferð til að sjá menningu og náttúru í nágrenninu. 

27. febrúar :

Heimferð með sterkari heilsu og hjartað fullt af gleði og góðum minningum.

Flogið frá Bangalore til Íslands,  með millilendingu í London, Frankfurt eða annarri evrópskri borg. 


Innifalið:

  • Flug milli Íslands og Bangalore með einni millilendingu, 20 kg taska í innritaðan farangur og handfarangur sem kemst undir sætið fyrir framan
  • Lítil rúta með loftkælingu á milli staða og í skoðunarferðum
  • Námskeið með Heiðu Björk þar sem farið er í grundvallaratriði ayurvedafræðanna og út á hvað panchakarma heilsumeðferð gengur. Fólk er þannig undirbúið undir ferðina svo betri árangur næst með dvölinni í Ayurvedagram. Hittst er í tvö skipti fyrir ferð og eitt skipti eftir að ferð er lokið.
  • 24 dags panchakarma meðferð á Ayurvedagram. Þar er allt innifalið; gisting í herbergi með sér baðherbergi, fullt ayurveda fæði, jurtalyf, einstaklingsmiðuð meðferð í um 3 klst á dag, jóga-, öndunaræfingar- og hugleiðslutími daglega og setrið býður upp á ýmsa viðburði daglega eins matreiðslunámskeið, danssýningu, ferð í hindúahof í nágrenninu, tónleika, fyrirlestur læknanna um ayurveda svo eitthvað sé nefnt. 
  • Hótel með morgunverði fyrir og eftir dvölina á Ayurvedagram.
  • Aðstoð Heiðu Bjarkar í Bangalore og fyrstu þrjá dagana í Ayurvedagram. 

Ekki innifalið:

  • Þjórfé eins og tíðkast í þessum heimshluta, til bílstjóra, þjóna á veitingahúsum, leiðsögumanna, ræstingafólks og meðferðaraðila á Ayurvedagram
  • Hádegis- og kvöldverðir í Bangalore fyrir og eftir meðferð

Skráning fer fram á vef Mundo,

https://mundo.is/ferd/indland-heilsu-og-aevintyraferd-februar-mars-2027/


Shipping & Returns

Hægt er að sækja vörur í Björkina í Grímsnesinu skv. samkomulagi. (Nærri Borg í Grímsnesi)

Fyrir nánari upplýsingar:
astogfridur@astogfridur.is - s. 8650154

Við sendum vörur um land allt. Pantanir eru afgreiddar á þriðjudögum í hverri viku nema á frídögum.