Útijóga, gönguferðir, hugleiðslur, öndunaræfingar, jóga nidra djúpslökun, fræðsla um ayurveda lífsvísindin, spjall um meltingu og næringu, heilandi grænmetisfæði, nudd, magnesium- og leirbað, söguspjall um márana á Spáni, gaman saman út að borða í Gaucín og ekki má gleyma sólbaðinu!
21-28. maí 2025
Komdu með í heilsueflandi ferð til Andalúsíuhéraðs á Spáni. Farið verður í göngur um fjöllin og korkskóginn, mjúkt jóga á morgnana í jógatjaldinu, yoga nidra leidd liggjandi djúpslökun á kvöldin, nudd og leirbað fyrir þá sem vilja.
Við höfum fræðsluspjall einn daginn um áhrif næringar á andlega og líkamlega heilsu út frá hinum fornu indversku lífsvísindum ayurveda og hver og einn fær aðstoð til að finna út sína meðfæddu líkamsgerð skv ayurveda fræðunum.
Að þessu sinni hefst námskeiðið í hinu heillandi fjallaþorpi Gaucín sem er nærri El Colmenar þar sem heilsubúgarðurinn Casa Rural Ahora er staðsettur. Í Gaucín notum við tækifærið og höfum söguspjall um márana á Spáni sem settu ærlegt mark sitt á landið með nær átta alda valdatíma sem einkenndist af blómstrandi menningu, framþróun í vísindum og efnahagslífi. Í Gaucín gefst tími til að skoða kastalann sem á rætur að rekja til tíma Rómverja en var mikilvægt virki á tíma máranna. Í Gaucín verður farið út að borða á veitingastað þar sem stórkostlegt útsýni gefur matnum aukið gildi, en hægt er að sjá ljósin í Afríku, hinum megin Gíbraltarsundsins í kvöldrökkrinu.
Næsta dag gerum við léttar æfingar fyrir morgunverð áður en lagt er af stað í göngu niður fjallið til þorpsins El Colmenar þar sem heilsubúgarðurinn Casa Rural Ahora er staðsettur. Þar verður síðan dvalið næstu sex nætur.
Hver og einn kemur sér sjálfur til Malaga. Þess má geta að flugfélagið Play og Heimsferðir hafa oft boðið upp á beint flug til Malaga. Einnig er flogið beint til Madrid með Icelandair og frá Madrid er hægt að taka þægilega hraðlest sem tekur 2,5 klst, beint til Malaga. Eða einfaldlega millilenda í Köben eða London og þaðan beint flug til Malaga :) Allskyns leiðir.
Á staðnum eru jógamottur en gott er að koma með eitt teppi og púða með sér fyrir jóga nidra djúpslökunina á kvöldin. Ef pláss er í töskunni er líka sniðugt að stinga einum eða tveimur jógakubbum niður.
Skipt er um handklæði einu sinni eða tvisvar í viku á herbergjunum. WC pappír og náttúruleg sápa er á baðherbergjunum. það má nefna að sápan er framleidd á staðnum og algerlega laus við aukaefni. Þar sem þetta er svokölluð ,,sveita ferðamennska" eða turismo rural, er ekki sami lúxusinn eins og á hótelherbergjum í borgum. Það er því ekki þrifið daglega og enginn ísskápur eða kaffi/te græjur inn á herbergjum. Þetta er búgarður í miðri náttúrunni, við endimörk þorpsins El Colmenar sem er í Malaga héraði. Áin Guadiaro rennur fram hjá búgarðinum og í garði nágrannans eru oft kindur á beit rétt við jógatjaldið. Ávaxtatré þar sem vaxa sítrónur, appelsínur og fleiri ávextir eru ræktuð á Casa Rural Ahora og er jógatjaldið í miðri þessari náttúrudýrð.
Dagskrá:
21. maí: Allir hittast við rómversku rústirnar í miðbæ Malaga kl 10:00. Töskurnar er best að geyma á hótelinu þar sem gist var nóttina áður. Við göngum lítinn hring um miðbæinn og setjumst í bröns nærri rómversku rústunum með útsýni til Alcazaba márakastalans. Í labbinu verður sýnt hvar rútan nær í okkur síðar um daginn.
21. maí: Rúta sækir okkur kl.13:00 og lagt í hann til fjallaþorpsins el Gaucín sem er 1,5 klst akstur. Á leiðinni verður stutt stopp í ostabúð við geitabú sem sérhæfir sig í geitaosti og selur ýmislegt annað úr héraðinu eins og vandaðar ólífuolíur, pylsur og hunang.
Í Gaucín verður gengið um bæinn og kannski kíkt á Arnarkastala (Castillo del Agila), sem er kastali frá tíma Rómverja sem er í útjaðri bæjarins. Aðeins um 20 mín ganga. Farið út að borða saman um kvöldið á stað með stórkostlegu útsýni yfir til Marokkó í Afríku. Gist í Gaucín.
22. maí: Morgunæfingar. Morgunverður og síðan gengið frá Gaucín til Casa Rural. Þetta er um 3-4 klst ganga og að mestu niður á við. Lagt af stað um kl. 10:00 - 10:30. Bíll kemur að sækja farangur og ferjar hann niður til Casa Rural Ahora.
22-28 maí: Námskeið í Casa Rural Ahora. Jóga, hugleiðsla, öndunaræfingar, djúpslökun, nudd, leirbað, göngur og fræðsluerindi.
Dagskráin í Casa Rural Ahora hefst í jógatjaldinu 22. maí kl. 17:00 með kynningarhring. Kvöldmatur kl. 19:30.
Dagskrá lýkur miðvikudaginn 28. maí eftir morgunjóga og morgunverð. Rúta sækir hópinn kl. 11:00. Komið til Malaga um kl. 15:00. Stoppað í þorpinu Casares á leiðinni niður til Malaga og gengið aðeins um þetta fallega litla fjallaþorp.
**********************
Ekki þarf að hafa reynslu af jóga til að taka þátt.
Jógakennari og leiðangursstjóri er Heiða Björk Sturludóttir, leiðsögumaður, umhverfisfræðingur, sagnfræðingur, kennari, jógakennari, ayurveda sérfræðingur og næringarþerapisti. Henni til aðstoðar er Þröstur Sverrisson, umhverfissagnfræðingur og leiðsögumaður.
Til að tryggja þér sæti: Greiða staðfestingargjald 80.000 kr inn á reikning Ástar og friðar: 6107171010. 0133-26-610717
Skrá Malaga í skýringu
Í kjölfarið þarf að fylla út eftirfarandi SKRÁNINGARFORM fyrir ferðaskrifstofuna Heillandi heimur.
Verðskilmálar: Greiða þarf staðfestingargjald að upphæð 80.000 kr. við skráningu.
Ganga þarf frá eftirstöðvum um miðjan mars 2025.
Ekki er endurgreitt ef forföll eru tilkynnt eftir 16. mars 2025.
Ef afbókað er fyrir þann tíma er öll upphæðin endurgreidd fyrir utan staðfestingargjaldið. Ef óviðráðanlegar aðstæður koma upp t.d. vegna alvarlegra veikinda verður ferðin endurgreidd að fullu fyrir utan staðfestingargjaldið.
Námskeiðið er haldið í samvinnu við ferðaskrifstofuna Heillandi heimur.
INNIFALIÐ:
EKKI INNIFALIÐ:
Nánari upplýsingar og skráning í síma 8650154 og í tölvupósti til: astogfridur@astogfridur.is
Heiða Björk og Þröstur leiðangursstjórar í Hrægammagjúfri.
Fjögurra manna herbergið. Veggur með hurðaropi og hengi fyrir aðskilur tvö rúm frá tveimur öðrum. Eitt salerni fyrir rúmin fjögur.
Baðherbergin eru skemmtiega hönnuð -spænskur sveitastíll og hvert herbergi er með sinn stíl.
Maturinn er ljúffengur. Hér má sjá spænska eggjaköku með aspas og tómat en þó uppistaðan í fæðunni sé grænmeti og ávextir er stundum boðið upp á egg og kinda- eða geitaost. Annars eru engar dýraafurðir í boði.
Séð yfir Gaucín frá Arnarkastala. En þangað er gengið á fyrsta degi.
Á göngu
Synt í uppsprettuvatni í Hrægammagljúfri
2-3 manna herbergi
Casa Rural Ahora búgarðurinn.
Fyllt eggaldin
Inngangur að heilsubúgarðinum
Guadiaro áin rennur fram hjá búgarðinu. Þar er tilvalið að kæla sig í sumarhitanum.