140 síðna viskubók um AYURVEDA

Bókin fæst á eftirfarandi stöðum:
  • Penninn Eymundsson
  • Systrasamlagið, Óðinsgötu 1
  • Bókakaffið Selfossi
  • Heilsuhofið á Akureyri
Ayurveda, lífsvísindin búa yfir mikilli speki um heilsu, lífsstíl og samhljóm alls. Þessi yfir 5000 ára vísindi eru upprunninn á Indlandsskaga og eru skráð í Veda ritin sem eru með elstu varðveittu ritum mannkyns. Þrátt fyrir aldurinn eru þau iðkuð víða um heim við góðar orðstír. Í þessari bók eru þau útskýrð og gerð aðgengileg með stuttum dæmisögum úr daglegu lífi. Hver og einn getur verið við stjórnvölinn í eigin heilsueflingu með því að velja næringu, hreyfingu og lífsstíl sem hentar.
  • Hver er þín meðfædda líkams- og hugargerð?
  • Hvernig á að halda lífskröftunum innra með þér í jafnvægi?
  • Hver er orsök sjúkdóma og hvernig þróast þeir?
  • Hvað er líkaminn að segja þér, þegar þú finnur fyrir einkennum? Lærðu á tungumál líkamans. Þá er hægt að bregðast við og ná aftur jafnvægi. Áður en léttvæg veikindi þróast yfir í erfiða og jafnvel óafturkræfa sjúkdóma.
Þessi bók á erindi við:
  • Fólk sem hefur áhuga á heildrænni heilsu.
  • Fólk sem hefur áhuga á jóga, hugleiðslu og öndunaræfingum
  • Fólk sem hefur áhuga á austurlenskum fræðum
  • Fólk sem hefur áhuga á matseld og kryddum
  • Fólk sem hefur áhuga á Indlandi og indverskum mat
  • Fólk sem vill kynnast eigin líkama og virkni hans
  • Fólk sem vill kynnast hrynjandi náttúrunnar og hvernig náttúran hefur áhrif á okkur mannfólkið
  • Fólk sem vill þekkja sína meðfæddu hugar- og líkamsgerð (eins og erfðamengið okkar)