PANCHAKARMANÁMSKEIÐ: Heilsu-, fræðslu- og ævintýraferð til Indands 4. jan til 10. feb 2025

Ást og Friður - Ayurveda studio og ferðaskrifstofan Heillandi heimur bjóða til heilsuveislu þar sem áherslan er lögð á panchakarma meðferðina indversku. 

Í þessari ferð gefst tækifæri til að sameina áhrifaríka heilsumeðferð í anda ayurveda og ævintýraferð til Indlandsk um leið og fræðst er um hina fornu lækningameðferð PANCHAKARMA.  Námskeiðið og ferðina leiðir Heiða Björk næringarþerapisti, ayurvedasérfræðingur, kennari og leiðsögukona. 

Flogið er til Kochi í Kerala héraði í Suður-Indlandi og dvalið þrjár nætur á hinu dásamlega hóteli Secret Garden og borgin Kochi skoðuð, hlýtt á stuttan fyrirlestur um ayurveda og líkamsklukkan aðlöguð eftir ferðalagið.  Það er ferðast á lítilli loftkældri rútu upp í fjallahéraðið Munnar sem er þekkt fyrir náttúrufegurð. Þar verður dvalið í  frísku fjallalofti og teekrurnar og kryddframleiðsla skoðuð. Dvalið verður á vönduðu hóteli og farið í stutta könnunarleiðangra í nágrenninu. 

Þaðan er farið til Athreya Ayurveda Center þar sem við tekur 25 daga áhrifarík heilsumeðferð - Panchakarma - sem notuð hefur verið í árþúsundir til að koma jafnvægi á lífskrafta (dósjur) líkamans til að bæta heilsu eða lengja og bæta lífslíkur. Meðferðin er áhrifarík fyrir bæði andlega og líkamlega kvilla en ekki þarf að þjást af sjúkdómum til að gera panchakarma, heldur er mælt með reglubundinni iðkun til að viðhalda góðri heilsu og halda aftur af hrörnun líkamans. 

Eftir dvölina í Athreya Ayurveda Center, verður ekið í suður og dvalið á notalegu hóteli í 5 nætur til að undirbúa líkama og anda undir heimferð. Á hótelinu verður hægt að halda heilsubótinni áfram með jóga, hollu mataræði, nuddi og öðrum dekurmeðferðum.  Flogið er heim frá alþjóðaflugvellinum Trivandrum 10. febrúar. 

 

Í lok ferðar fá þátttakendur skjal sem vottar 30 daga nám í Ayurveda og panchakarma fræðum - Stig 1. Þátttakendur hafa í framhaldinu rétt á þátttöku í framhaldsnámi í ayurveda og panchakarmafræðum hjá Heiðu. 

++++++++++++++++++++++++

Fyrir hverja er panchakarma?

Panchakarma er einstaklingsmiðuð heilsumeðferð ayurvedal lífsvísindanna. Ayurveda læknir fer yfir heilsufar og væntingar og lagar meðferðina að því. Ekki er nauðsynlegt að þekkja ayurvedafræðin eða jógafræðin til að njóta panchakarma meðferðar. 

Með aðferð panchakarma er hægt að koma jafnvægi á lífskraftana þrjá - dósjurnar þrjár - sem stýra virkni líkama okkar. Þegar þær eru komnar úr jafnvægi byrja veikindi að láta á sér kræla. Meðferðin er því gagnleg fyrir þá sem glíma við heilsufarsvanda, jafnt líkamlegan sem andlegan en ekki síður fyrir þá sem vilja styrkja líkamann og hægja á öldrun. Húðin ljómar og líkaminn er allur slakur og fínn eftir panchakarma meðferð þar sem dekrað er við hvern og einn með hollu og góðu fæði, jurtastyrktum olíum, olíunuddi eða þurrnuddi með jurtum, jóga, hugleiðslu, öndunaræfingum og einfaldlega með því að slaka á umvafin heilandi náttúrunni.

Sumir fara reglulega í panchakarma (ef pyngjan leyfir) til að stilla dósjurnar af og leggja inn í heilsubankann en aðrir fara sjaldnar og eingöngu til að vinna með ákveðna sjúkdóma eða kvilla. Því lengur sem dvalið er, því meiri árangur næst.

I upphafi fyllir fólk út spurningalista varðandi heilsufar sitt og sendir til Athreya setursins. Í kjölfarið ræðir ayurveda læknir við gestinn í spjalli á netinu um heilsufarsatriði sem viðkomandi vill einbeita sér að og um væntingar. Hvaða árangri sé raunhæft að ætla sér að ná. Þegar út er komið er búið að setja saman prógram í samræmi við þessa forvinnu. 

++++++++++++++++++++++++++

INNIFALIÐ:

  • Flug
  • Lítil rúta með loftkælingu - akstur á milli staða
  • Leiðsögn og aðstoð Heiðu Bjarkar á meðan á ferð stendur
  • Námskeið og fræðsla um panchakarma og ayurveda með Heiðu Björk áður en lagt er í´ann til að undirbúnings
  • 25 daga panchakarma meðferð á Athreya Ayurveda Center. Þar er allt innifalið (gisting í einkaherbergi með sér baðherbergi, fullt ayurveda fæði, jurtalyf, meðferð í um 3 klst á dag, jóga- og hugleiðslutími daglega)
  • Dvöl í Secret Garden í 3 nætur með morgunverði 
  • Dvöl í 3 nætur með morgunverði á Blanket Hotel and Spa í Munnar - stuttar skoðunarferðir frá hóteli
  • 5 nætur á hótel Fragrant Nature Backwater Resort nærri Kollam. Þar er morgunverður innifalinn. 
  • Námskeið með Heiðu Björk þar sem farið er í grundvallaratriði ayurvedafræðanna og út á hvað panchakarma heilsumeðferð gengur og fólk undirbúið undir ferðina.
  • Aðstoð Heiðu Bjarkar og fræðsla bæði í Kochi í upphafi dvalar og á Athreya ayurveda setrinu. 

 

VERÐ:

1,2 milljónir miðað við eins manns herbergi.  Ef tveir saman í herbergi dragast 85.000 kr frá. 

Staðfestingargjald 100.000 kr við skráningu. (Óendurkræft, nema ferð fali niður)

Greiðsla til: Heillandi heimur:

  • Einsmannsherbergi 475.000 kr (Flug, rúta og hótel fyrir og eftir meðferð)
    • Greiða 40% fyrir 2. júlí  (190.000); 40% fyrir 2. sept (190.000 kr); 20% fyrir 2. desember (95.000 kr)
  • Tveggjamanna herbergi 393.000 kr (Flug, rúta og hótel fyrir og eftir meðferð)
    • Greiða 40% fyrir 2. júlí (157.000 kr); 40% fyrir 2. sept (157.000 kr); 20% fyrir 2. des (79.000 kr)
  • (Hægt er að koma sér sjálfur til Kochi og hitta hópinn þar ef vill. Þá dregst 250.000 kr af greiðslunni til Hörpu í Heillandi heimur)
Greiðsla til: Ást og Friður
  • 625.000 kr. (Panchakarma meðferð í 25 daga þar sem allt er innifalið, meðferð, gisting í sér herbergi með baðherbergi, fæði, jóga, jurtalyf), námskeið til undirbúnings í desember, dvöl hjá Þóru í Secret Garden í tveggja manna herbergjum, skoðunarferðir í Munnar)
    • Greiða 40% fyrir 2. ágúst (250.000 kr) ; 40% fyrir 2. október (250.000 kr); 20% fyrir 2. janúar (125.000 kr)
  • Annar kostnaður
    • Þjórfé eins og tíðkast í þessum heimshluta. Til bílstjóra, þjóna á veitingahúsum, ræstingafólks og meðferðaraðilunum ykkar. Allir fá úthlutaða tvo meðferðaraðila á Athreya sem fylgja þeim alla 25 dagana
    • Skoðunarferðir frá Athreya eins og húsbátasigling, akstur með rikshaw inn í bæinn Kottayam, kaup á indverskum teppum, fatnaði, minjagripum, kryddum o.s.frv. Hádegis- og kvöldverður á hótelum fyrir og eftir meðferð. Máltíðir á veitingahúsum gætu kostað um 1500 - 2000 kr.

Smellið á tengilinn. hér fyrir neðan til að sjá myndir og nánari upplýsingar um ferðina.

Nánari upplýsingar gefur Heiða Björk - astogfridur@astogfridur.is eða í síma 8650154.

https://www.youtube.com/watch?v=YA1uFJW2dSM&ab_channel=HeidaBj%C3%B6rk