{"product_id":"morgunandakt-med-meiru","title":"🔆 MORGUNANDAKT  MEÐ MEIRU! 🔆  10 daga áskorun. Olía og Öndun.","description":"\u003cp\u003eNú gefst þér tækifæri til að taka upp góðar venjur í anda ayurvedafræðanna og gera abhyanga (sjálfsnudd með olíu) og nadi shodhana öndun í morgunsárið. Þetta er framhaldsnámskeið fyrir þau sem voru með í 5 vikna áskoruninni sem hófst í byrjun apríl.  Það er þó lítið mál fyrir nýja að bætast við!  Ég get hitt alla sem vilja stökkva á vagninn og vera með á framhaldsnámskeiðinu í stutta stund á netinu áður en námskeiðið hefst og farið yfir öndunaræfinguna Nadi Shodhana og nokkur önnur atriði sem hin hafa nú þegar náð góðum tökum á. En, þetta er ekki flókið og eftir fyrstu tvo morgnana er þetta komið.  \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFyrra námskeiðið, (sem lýkur 9. maí) gekk svo vel að ég ákvað að hafa framhald. Ég og þátttakendurnir finnum hvað þetta gerir okkur gott. En nú bætum við um betur og berum á okkur olíu (sesamolíu, möndluolíu, kókosolíu eða einhverja aðra góða kaldpressaða olíu) áður en við hittumst á netinu og leyfum henni að sitja á húðinni á meðan við gerum öndunaræfingarnar saman. Þegar allir hafa kvaðst í lok Morgunandaktar er farið í sturtu eða bað og olían þvegin af með heitu vatni. Hún hefur þá haft rúman hálftíma til að ganga inn í húðina og smyrja og næra vefi líkamans. Fátt er betra fyrir taugakerfið og til að vinna gegn öldrun. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eJákvæðar breytingar sem þátttakendur hafa fundið á fyrra námskeiðinu eru t.d. eftirfarandi: Svefninn batnar, orkan batnar, meiri gleði í hjarta, meiri slaki í taugakerfi, röddin styrkist og lungnarýmdin eykst. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRannsóknir hafa sýnt margvíslegan ávinning af því að gera nadi shodhana reglulega eins og HRV eykst (hjartsláttarbreytileiki) sem gerir að verkum að hjartað stenst álag betur, blóðþrýstingur lækkar, einbeiting og minni batnar svo eitthvað sé nefnt. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVið hittumst á zoom kl. 7:30 í tíu morgna og erum saman í öndun og spjalli í hálftíma. Fyrsti morguninn er 5. júní.  Stundum er samveran ögn lengri til að gefa tíma fyrir spurningar og spjall. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVertu með og bættu heilsuna í góðum félagsskap \u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\u003cspan class=\"x1xsqp64 xiy17q3 x1o6pynw x19co3pv xdj266r xjn30re xat24cr x1hb08if x2b8uid\" data-testid=\"emoji\" data-emoji-size=\"16\"\u003e\u003cspan class=\"xexx8yu xcaqkgz x18d9i69 xbwkkl7 x3jgonx x1bhl96m\"\u003e✨\u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan class=\"x1xsqp64 xiy17q3 x1o6pynw x19co3pv xdj266r xjn30re xat24cr x1hb08if x2b8uid\" data-testid=\"emoji\" data-emoji-size=\"16\"\u003e\u003cspan class=\"xexx8yu xcaqkgz x18d9i69 xbwkkl7 x3jgonx x1bhl96m\"\u003e✨\u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan class=\"x1xsqp64 xiy17q3 x1o6pynw x19co3pv xdj266r xjn30re xat24cr x1hb08if x2b8uid\" data-testid=\"emoji\" data-emoji-size=\"16\"\u003e\u003cspan class=\"xexx8yu xcaqkgz x18d9i69 xbwkkl7 x3jgonx x1bhl96m\"\u003e✨\u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Ást og friður","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51375600632103,"sku":null,"price":9000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0833\/1860\/4071\/files\/10morgnaaskorun-Oliumynd_a8409092-51e7-4508-a8d8-ca4c2e13e977.jpg?v=1778187393","url":"https:\/\/astogfridur.is\/products\/morgunandakt-med-meiru","provider":"Ást og friður","version":"1.0","type":"link"}