{"product_id":"heilsu-fraedslu-og-aevintyraferd-til-indlands-i-mars-2027","title":"🧞‍♂️ Heilsu-,  fræðslu- og ævintýraferð til Indlands í mars 2027 🧞‍♂️","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eHeiða Björk \u003c\/strong\u003ebýður til til heilsuveislu og upplifun á Indlandi í samstarfi við Mundo, þar sem áherslan er lögð á panchakarma meðferðina indversku. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNákvæm ferðatilhögun og verð verður tilbúið seinnipartinn í ágúst. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFlogið verður út u.þ.b. 25. febrúar og komið heim u.þ.b. 28. mars. Dvalið verður í 24 daga á hinu margverðlaunaða ayurveda heilsusetri AYURVEDAGRAM sem er í Karnataka héraði á Suður-Indlandi. \u003c\/p\u003e\n\u003cdiv style=\"text-align: right;\"\u003e\u003cimg src=\"https:\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0833\/1860\/4071\/files\/mysuru_240x240.jpg?v=1785845943\" style=\"margin-bottom: 16px; float: right;\"\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cp\u003eÍ þessari ferð gefst tækifæri til að sameina áhrifaríka heilsumeðferð í anda ayurveda og ævintýraferð til Indlands um leið og fræðst er um hina fornu lækningameðferð \u003cstrong\u003ePANCHAKARMA\u003c\/strong\u003e.  Námskeiðið og ferðina leiðir Heiða Björk næringarþerapisti, ayurvedasérfræðingur, kennari og leiðsögukona. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePanchakarma\u003c\/strong\u003e er einstaklingsmiðuð heilsumeðferð ayurveda lífsvísindanna. Ayurveda læknir fer yfir heilsufar og væntingar og lagar meðferðina að því. Ekki er nauðsynlegt að þekkja ayurvedafræðin eða jógafræðin til að njóta panchakarma meðferðar. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMeð aðferð panchakarma er hægt að koma jafnvægi á lífskraftana þrjá (dósjurnar þrjár): vata, pitta og kapha – sem stýra virkni líkama okkar. Þegar þær eru komnar úr jafnvægi byrja veikindi að láta á sér kræla. Meðferðin er því gagnleg fyrir þá sem glíma við heilsufarsvanda, jafnt líkamlegan sem andlegan en ekki síður fyrir þá sem vilja styrkja líkamann og hægja á öldrun. Húðin ljómar og líkaminn er allur slakur og fínn eftir panchakarma meðferð þar sem dekrað er við hvern og einn með hollu og góðu fæði, jurtastyrktum olíum, olíunuddi eða þurrnuddi með jurtum, jóga, hugleiðslu, öndunaræfingum og einfaldlega með því að slaka á í fallegu umhverfi og koma reglu á lífsklukkuna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSumir fara reglulega í panchakarma til að stilla dósjurnar af og leggja inn í heilsubankann en aðrir fara sjaldnar og eingöngu til að vinna með ákveðna sjúkdóma eða kvilla. Því lengur sem dvalið er, því meiri árangur næst.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ upphafi fyllir fólk út spurningalista varðandi heilsufar sitt og sendir til Ayurvedagram setursins. Þegar út er komið tekur við viðtal og skoðun hjá ayurveda lækni sem útbýr prógram í samræmi við svörin í spurningalistanum og skoðunina á staðnum.  Ayurveda læknirinn kemur síðan daglega og athugar með stöðuna hjá hverjum og einum og gerir breytingar í samræmi við þá framvindu sem á sér stað í meðferðinni. \u003c\/p\u003e\n\u003cdiv class=\"content\"\u003e\n\u003cdiv class=\"itinerary-row active\"\u003e\n\u003cdiv class=\"wte-itinerary-head-wrap\"\u003e\n\u003ch3 class=\"title\"\u003e\u003cstrong\u003e25 eða 26. febrúar 2027:\u003c\/strong\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cdiv class=\"itinerary-title\"\u003e\u003cspan\u003eHaldið á vit ævintýranna\u003c\/span\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"itinerary-content show\"\u003e\n\u003cdiv class=\"content\"\u003e\n\u003cp\u003eFlogið frá Íslandi til \u003cstrong\u003eBangalore\u003c\/strong\u003e á Indlandi með millilendingu í London, Frankfurt, Amsterdam eða annarri evrópskri borg. Þaðan er síðan beint flug til Bangalore. \u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"itinerary-row active\"\u003e\n\u003cdiv class=\"wte-itinerary-head-wrap\"\u003e\n\u003ch3 style=\"text-align: left;\" class=\"title\"\u003e\u003cstrong\u003e27. febrúar :\u003c\/strong\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cdiv style=\"text-align: left;\" class=\"itinerary-title\"\u003e\u003cspan\u003eVið erum komin til Indlands!\u003c\/span\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"itinerary-content show\"\u003e\n\u003cdiv style=\"text-align: right;\" class=\"content\"\u003e\n\u003cp style=\"text-align: left;\"\u003eEftir lendingu í Bangalore höldum við á huggulegt hótel í borginni, tékkum okkur inn og slökum á eftir langt ferðalag. Það er gott að vera búin að jafna sig á flugþreytu þegar meðferð hefst á Ayurvedagram.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"itinerary-row active\"\u003e\n\u003cdiv class=\"wte-itinerary-head-wrap\"\u003e\n\u003ch3 class=\"title\"\u003e\u003cstrong\u003e28. febrúar :\u003c\/strong\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cdiv class=\"itinerary-title\"\u003e\u003cspan\u003eDagsferð um Bangalore og nágrenni til að njóta menningarinnr og matarins sem Karnataka hérað býður upp á. \u003c\/span\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"itinerary-content show\"\u003e\n\u003cdiv class=\"content\"\u003e\n\u003cp\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"itinerary-row active\"\u003e\n\u003cdiv class=\"wte-itinerary-head-wrap\"\u003e\n\u003ch3 class=\"title\"\u003e\u003cstrong\u003e1. mars - 24. mars :\u003c\/strong\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cdiv class=\"itinerary-title\"\u003e\u003cspan\u003eDvöl á \u003cstrong\u003eAyurvedagram \u003c\/strong\u003esem er  ayurveda-heilsusetur sem hlaut nýverið verðlaun og viðurkenningu sem besta ayurveda heilsusetur Suður-Indlands árið 2025.\u003c\/span\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"itinerary-content show\"\u003e\n\u003cdiv style=\"text-align: start;\" class=\"content\"\u003e\n\u003cp\u003e21 dags áhrifarík heilsumeðferð - \u003cstrong\u003ePanchakarma\u003c\/strong\u003e - sem notuð hefur verið í árþúsundir til að koma jafnvægi á lífskrafta (dósjur) líkamans til að bæta heilsu eða lengja og bæta lífslíkur. Meðferðin er áhrifarík fyrir bæði andlega og líkamlega kvilla en ekki þarf að þjást af sjúkdómum til að gera panchakarma, heldur er mælt með reglubundinni iðkun til að viðhalda góðri heilsu og halda aftur af hrörnun líkamans. \u003cimg style=\"float: none;\" src=\"https:\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0833\/1860\/4071\/files\/Verdlaun_240x240.jpg?v=1751359804\"\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"itinerary-row active\"\u003e\n\u003cdiv class=\"wte-itinerary-head-wrap\"\u003e\n\u003ch3 class=\"title\"\u003e\u003cstrong\u003e24.-27. febrúar :\u003c\/strong\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cdiv class=\"itinerary-title\"\u003e\n\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp\u003eEftir meðmerðirnar í Ayurvedagram verður farið í rútu til borgarinnar Mysore sem er gömul höfuðborg konungsríkisins Mysore í suðvestur Karnataka héraði. Borgin er mikil yoga borg og með marga fallega almenningsgarða. Hún er þekkt fyrir menningararf og hallir og sú frægasta er sennilega Mysore höllin þar sem blandast saman byggingarlist hindúa, islam, gotnesks og rajput. Í Mysore er líka hinn margra alda gamli \u003cstrong\u003eDevaraja\u003c\/strong\u003e markaður sem er fullur af silki, kryddum, ilmolíum og sandalvið. Gistum vönduðu hóteli í miðbæ Mysuru í göngufæri við Devaraja markaðinn og Kukkarahalli vatnið, Railway museum og fleira áhugavert. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ Mysore verður farið í eina dagsferð til að sjá menningu og náttúru í nágrenninu. \u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"itinerary-row active\"\u003e\n\u003cdiv class=\"wte-itinerary-head-wrap\"\u003e\n\u003ch3 class=\"title\"\u003e\u003cstrong\u003e27. febrúar :\u003c\/strong\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cdiv class=\"itinerary-title\"\u003e\u003cspan\u003eHeimferð með sterkari heilsu og hjartað fullt af gleði og góðum minningum.\u003c\/span\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"itinerary-content show\"\u003e\n\u003cdiv class=\"content\"\u003e\n\u003cp\u003eFlogið frá Bangalore til Íslands með millilendingu í London, Frankfurt eða annarri evrópskri borg. \u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003ch3\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003ch3\u003eInnifalið:\u003c\/h3\u003e\n\u003cul id=\"include-result\"\u003e\n\u003cli\u003eFlug milli Íslands og Bangalore með einni millilendingu, 20 kg taska í innritaðan farangur og handfarangur sem kemst undir sætið fyrir framan\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eLítil rúta með loftkælingu á milli staða og í skoðunarferðum\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eNámskeið með Heiðu Björk þar sem farið er í grundvallaratriði ayurvedafræðanna og út á hvað panchakarma heilsumeðferð gengur og fólk undirbúið undir ferðina. Hittst er í tvö skipti fyrir ferð og eitt skipti eftir að ferð er lokið.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e24 dags panchakarma meðferð á Ayurvedagram. Þar er allt innifalið; gisting í herbergi með sér baðherbergi, fullt ayurveda fæði, jurtalyf, meðferð í um 3 klst á dag, jóga-, öndunaræfingar- og hugleiðslutími daglega og setrið býður upp á ýmsa viðburði daglega eins matreiðslunámskeið, danssýningu, ferð í hindúahof í nágrenninu, tónleika, fyrirlestur læknanna um ayurveda svo eitthvað sé nefnt. \u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e5-6 nætur með morgunverði á vönduðum hótelum fyrir og eftir dvölina á Ayurvedagram.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eAðstoð Heiðu Bjarkar í Bangalore og fyrstu 3 dagana í Ayurvedagram. \u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"content\"\u003e\n\u003ch3\u003eEkki innifalið:\u003c\/h3\u003e\n\u003cul id=\"exclude-result\"\u003e\n\u003cli\u003eÞjórfé eins og tíðkast í þessum heimshluta, til bílstjóra, þjóna á veitingahúsum, ræstingafólks og meðferðaraðila á Ayurvedagram\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eHádegis- og kvöldverður í Bangalore fyrir og eftir meðferð\u003cbr\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003eVerð er um 1.000.000. miðað við tvo í herbergi en eitthvað dýrara ef dvalið verður í einsmanns herbergi.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cimg src=\"https:\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0833\/1860\/4071\/files\/Markadur.jpg?v=1750610845\" alt=\"\"\u003e\u003cimg src=\"https:\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0833\/1860\/4071\/files\/ayurvedagram1.jpg?v=1750610972\" alt=\"\"\u003e\u003cimg src=\"https:\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0833\/1860\/4071\/files\/16d4cbaf-ad7f-4448-b11a-5c3da1d38ae5.jpg?v=1750611017\" alt=\"\"\u003e\u003cimg src=\"https:\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0833\/1860\/4071\/files\/Ayurvedagram_klinikin.jpg?v=1750611055\" alt=\"\"\u003e\u003cimg src=\"https:\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0833\/1860\/4071\/files\/ayurvedagram4.jpg?v=1750611094\" alt=\"\"\u003e\u003cimg src=\"https:\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0833\/1860\/4071\/files\/ayurvedagram3.jpg?v=1750611134\" alt=\"\"\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Ást og friður","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51783433388327,"sku":null,"price":0.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0833\/1860\/4071\/files\/ayurvedagram4.jpg?v=1750611579","url":"https:\/\/astogfridur.is\/products\/heilsu-fraedslu-og-aevintyraferd-til-indlands-i-mars-2027","provider":"Ást og friður","version":"1.0","type":"link"}